Strandblakið af stað
laugardagur 29.maí 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 140 - Athugasemdir (2) Senda á Facebook

Það er mikið á döfinni í sumar í sandinum og má finna allar upplýsingar á www.strandblak.is. Fyrst ber að nefna námskeið danska landsliðsþjálfarans Peter Lyö sem fram fer um næstu helgi. Enn er
opið fyrir skráningu á námskeiðið og um að gera að missa ekki af þessu einstaka tækifæri. Þá má nefna fjölda
móta sem haldinn verður í sumar og munu þau aldrei hafa verið fleiri. Fjölmargir vellir hafa verið byggðir upp víða um land og hefur
aðstaða til að iðka strandblak því batnað stórlega. Volleyballl.is hvetur alla til að prófa sig í sandinum - þetta er
frábær skemmtun.




