mánudagur 10.ágúst 2009 - Stefán Jóhannesson - Lestrar 177 -
Athugasemdir (0) Senda á Facebook

Gerist þetta hjá HK?
Zdravko Demirev hefur verið ráðinn yfirþjálfari hjá blakdeild HK næsta vetur.
Hann mun þjálfa meistaraflokka félagsins og 2. flokk karla og kvenna. Zdravko hefur langa reynslu af þjálfun á Íslandi en lengst af
þjálfaði hann hjá ÍS bæði karla- og kvennalið. Hann hefur þjálfað mikið á vegum BLÍ, karla og kvennalandsliðin
ásamt yngri landsliðum. Ferill hans sem leikmanns er orðinn langur en hann lék með yngri landsliðum í Búlgaríu áður en hann fluttist til
Íslands 1993. Zdravko varð margfaldur Íslands- og bikarmeistari með liði ÍS bæði sem þjálfari og leikmaður. Nú síðast
hefur hann leikið með liði Fylkis. Zdravko er íslenskur ríkisborgari og hefur leikið fjölmarga landsleiki fyrir hönd Íslands.
Zdravko er ekki með öllu ókunnur þjálfun hjá HK þar sem hann hefur þjálfað 3. flokk karla og kvenna. Ekki er að efa að koma
Zdravko til HK mun enn efla starfsemi blakdeildar HK sem nú þegar er ein sú öflugasta á landinu.