Volleyball.is

Íslenska karlalandsliðið tapaði lokaleik sínum í riðlakeppni EM smáþjóða sem fram fór á Möltu. Þrátt fyrir tapið endaði Ísland í öðru sæti og kemst því áfram í úrslitakeppnina.

Mikasa

Fréttir

Tap gegn Lux í lokaleik

Íslenska karlalandsliðið tapaði lokaleik sínum í riðlakeppni EM smáþjóða sem fram fór á Möltu. Þrátt fyrir tapið endaði Ísland í öðru sæti og kemst því áfram í úrslitakeppnina.

Leikurinn við Luxembourg var úrslitaleikurinn í riðlinum enda bæði liðin taplaus fyrir leikinn. Auk þess höfðu bæði lið tryggt sig áfram í úrslitakeppnina sem fram fer í Andorra á næsta ári. Íslenska liðið náði sér ekki á strik í leiknum og tapaðist hann 3 - 0 (25-19, 25-20, 25-18).

Þrátt fyrir tapið verður árangur liðsins að teljast vel ásættanlegur enda markmið ferðarinnar að komast í úrslitin. Allir leikmenn liðsins komu við sögu í leiknum. 


Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

ka-throttur__69_of_86_.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn