Þróttur 60 ára í dag
laugardagur 23.maí 2009 - Stefán Jóhannesson - Lestrar 108 - Athugasemdir (0) Senda á Facebook
Knattspyrnufélagið Þróttur fagnar 60 ára afmæli sínu í dag.
Mikið verður um dýrðir hjá þeim eins og gefur að skilja. Blakdeildin tekur að sjálfsögðu þátt í
hátíðahöldunum og verða m.a. bikarar vetrarins til sýnis. Blakdeildin mun vera eina deildin sem landaði Íslandsmeistaratitlum í vetur - en
árangur karlaliðsins var frábær, þeir unnu allt sem hægt var að vinna.
Þrátt fyrir góðan árangur í vetur eru horfur tvísýnar fyrir næsta vetur. Ekki hefur enn tekist að manna stjórn í
blakdeildinni. Það er áhyggjuefni að þessi fornfræga blakdeild sé komin í þessa stöðu. Blakíþróttin má ekki
við því að þau félög sem hafa íþróttina á dagskrá hjá sér týni tölunni. Þvert á
móti er mikilvægt að þeim fjölgi á næstunni. Þróttarar verða því að leysa úr þeirri stöðu sem komin er
upp sem allra fyrst.
Volleyball.is óskar Þrótturum til hamingju með afmælið.




