Volleyball.is

Þróttarar tryggður sér titilinn með öruggum 3 - 0 sigri á Stjörnunni í Ásgarði í dag (21-25,24-26,15-25). 

Mikasa

Fréttir

Þróttarar Íslandsmeistarar í karlaflokki

Þróttarar fagna sigrinum
Þróttarar fagna sigrinum
Þróttarar tryggður sér titilinn með öruggum 3 - 0 sigri á Stjörnunni í Ásgarði í dag (21-25,24-26,15-25). 
Þróttarar unnu fyrsta leik liðanna og voru því komnir í lykilstöðu. Hjá Stjörnumönnum kom bara sigur til greina. Til að svo mætti verða var hinsvegar ljóst að þeir yrðu að bæta leik sinn verulega. Og það gerðu Stjörnumenn en það dugði einfaldlega ekki til gegn ógnarsterku liði þróttara. 

Stjarnan byrjaði leikinn vel og hafði frumkvæðið framanaf fyrstu hrinunni. Liðin skiptust á að vinna stig en um miðbik hrinunnar fóru Þróttarar að síga framúr. Einkum var það öflug hávörn og mistök í sókn Stjörnumanna sem skildi á milli liðanna. Fysta hrinan endaði svo 25-21 fyrir Þrótt. 

Önnur hrinan þróaðist á svipaðan hátt og virtist allt stefna í öruggan sigur Þróttara. Stjörnumenn neituðu að gefast upp og náðu klóra í bakkann. Þeir náðu svo að jafna leikinn undir lok hrinunnar og komust í 24-24. Þá sögðu Þróttarar stopp og kláruðu hrinuna 26-24. 

Síðasta hrinan var svo eign Þróttara frá upphafi og greinilegt að þeir ætluðu ekki að taka neina áhættu á að hleypa Stjörnumönnum inn í leikinn. Þróttur vann hrinuna á sannfærandi hátt 25-15 og þarmeð var titillinn í höfn. 

Stjörnumenn börðust vel í leiknum og gerðu marga góða hluti. Of mörg mistök í sókn - jafnvel úr úrvalsfærum - kostuðu sitt og reyndist á endanum það sem skildi liðin að. Alexander Simeonov var öflugur að vanda og hann lagði allt sitt í leikinn. Þeir Emil Gunnarsson og Róbert Hlöðversson áttu einnig ágæta spretti en voru mistækir á köflum. Móttaka Stjörnumanna var mun betri en oft áður en vörnin náði sér ekki á strik. Hávörn Stjörnumanna var oft grátt leikin af Vali Guðjóni Valssyni, uppspilara Þróttara. 

Hjá Þrótti var Masauyiki Takahashi áberandi og átti hann mjög góðan leik. Hann kláraði sín færi mjög vel og ávallt þegar Þróttarar lentu í vandræðum var leitað til hans. Hann skorað einnig nokkur góð stig beint úr uppgjöf og lét Stjörnuna hafa vel fyrir hlutunum. Miðjumennirnir Áki Thoroddsen og Jóhann Sigurðsson voru mjög öflugir bæði í sókninni og í hávörn. Þeir ógnuðu mikið og ollu hávörn Stjörnunar miklum vandræðum. 

Þróttarar eru vel að sigrinum komnir og voru einfaldlega með langöflugasta liðið í vetur. 


Að leik loknum afhenti Jason Ívarsson, formaður BLÍ, Þrótturum bikarinn.

Volleyball.is óskar Þrótturum til hamingu með sigurinn!


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn