Volleyball.is

Ein tillaga hefur borist um breytingar á mótahaldi hjá BLÍ fyrir næsta vetur. 

Mikasa

Fréttir

Tillaga um breytt mótahald

íslandsmeistarar HK taka við verðlaunum
íslandsmeistarar HK taka við verðlaunum
Ein tillaga hefur borist um breytingar á mótahaldi hjá BLÍ fyrir næsta vetur.  Í tillögunni eru lagðar til róttækar breytingar á 1. og 2. deild karla og kvenna. Tillagan er birt hér í heild sinni.


Tillaga um breytingu á reglugerð fyrir deildarkeppni og úrslitakeppni BLÍ
Flutningsaðili: Sævar Már Guðmundsson, framkvæmdastjóri BLÍ og Ólafur J. Júlíusson, HK.
Reglugerð fyrir deilda keppni og Íslandsmót BLÍ í meistaraflokkum karla og kvenna
1. gr.
Leikið skal í þremur deildum, 1., 2. og 3. deild
2. gr.
Í fyrstu deild skal leikin tvöföld umferð til deildarmeistaratitils. Deildin skal að lágmarki hafa 8
lið. Að deildarkeppninni lokinni skal leikið í úrvalsdeild til Íslandsmeistaratitils með þátttöku
fjögurra efstu liðanna á eftirfarandi hátt: Leikin skal tvöföld umferð, heima og heiman, þar sem
efsta liðið hampar Íslandsmeistaratitli. Fjögur neðstu liðin í deildinni leika einnig tvöfalda
umferð heima og heiman, og neðsta liðið fellur niður í 2. Deild. Aðeins er heimilt að hafa 1 lið
frá hverju félagi í 1. Deild en B liðum er heimilt að taka þátt í 2. Deild.
Í 2. Deild Íslandsmótsins skal leikið í riðlum á landsvísu. Í riðlunum skal að hámarki vera 7 lið
og leikin er tvöföld umferð, heima og heiman. Þó er mótanefnd heimilt að heimila öðruvísi
mótahald fyrir austan og norðan. Öll lið greiða þátttökugjald til BLÍ. Í úrslitakeppni 2. Deildar er
leikið til úrslita milli efstu liðanna í riðlunum.
Í 3. Deild Íslandsmótsins skal leikið í riðlum eftir landshlutum. Riðlarnir skulu le iknir á tveimur
dögum fyrir áramót og tveimur dögum eftir áramót. Mótanefnd er þó heimilt að hafa mótshaldið
öðruvísi ef þess þarf. Hver riðill má ekki hafa fleiri en 7 lið en leikið skal upp á tvær unnar
hrinur. Úrslitakeppni er haldin þar sem þrjú efstu liðin í hverju riðli spila til úrslita í einfaldri
umferð.
3. gr.
Rétt til þátttöku í 1. deild karla og kvenna eiga þau lið sem þar léku síðasta keppnistímabil og
féllu ekki í 2. deild. Sérákvæði gildir 2009: Liðin sem hafa rétt til þátttöku í 1. Deildinni eru þau
lið sem voru þar fyrir auk fjögurra efstu liðanna í 2. Deild nema þó þau lið sem kallast B lið
hvers félags, þá fer sætið til næsta liðs í röðinni. Að keppnistímabili loknu fellur neðsta liðið úr
1. Deild og efsta lið 2. Deildar fer upp í 1. Deild. Á þetta einnig við um keppni milli 2. Og 3.
Deildar.
4. gr.
Heimilt er að selja nafn deilda.
5. gr.
Hrinuhlutfall ræður röð liða ef tvö eða fleiri eru með jafn mörg stig. Ef þetta dugar ekki ræður
stigaskor röð liða og því næst hlutkesti. Hrinuhlutfall skal fundið út með því að deila unnum
hrinum með töpuðum hrinum. Skorhlutfall skal fundið út með því að deila skoruðum stigum með
töpuðum stigum.
6. gr.
B liðum félaga er heimiluð þátttaka í 2. deild. 7 leikjahæstu leikmenn A liða mega ekki leika
með B liðum.
10. gr.
Fyrir hverja unna hrinu í deildarkeppni 1., 2.og 3. deildar og úr valsdeildar skal gefa 1 stig.
Leikur sem fer t d 3 - 2 gefur sigurvegaranum 3 stig en tapliðinu 2 stig.
Ákvæði frá dómaranefnd.
Til að öðlast þátttökurétt í deildakeppni karla og kvenna þarf lið að tilnefna 2 virka dómara til að
dæma fyrir þess hönd á keppnistímabilinu og skal annar vera landsdómari. Lið í neðri deildum
(2.og 3. Deild) skulu tilnefna a.m.k. 1 virkan dómara. Skal tilkynna til dómaranefndar fyrir 1.
September ár hvert um þessa dómara, að öðru kosti þarf að halda dómaranámskeið fyrir félagið .
Dómaranefnd er heimilt að veita undanþágu ef til vandræða horfir en dómaranefnd skal a.m.k.
halda eitt dómaranámskeið á ári.
Útvegi lið ekki þá dómara sem þingsamþykkt segir til um á keppnistímabilinu skal liðið sektað
um kr. 20. 000 fyrir hvern dómara sem uppá vantar.
Því liði sem á heimaleik ber skylda til að hafa samband við þá dómara sem dæma eiga þremur
dögum áður en leikur fer fram. Ef dómari getur ekki dæmt ber að snúa sér til annars dómara.
Dómarar geta skipt við aðra dómara. Héraðsdómari má ekki vera aðaldómari í 1. deild karla.
Aðaldómari ber ábyrgð á því að leikskýrsla berist til skrifstofu BLÍ og skal sjá til þess að hún
berist í síðasta lagi innan þriggja daga.
Leiðbeiningar um umsjón heimaleikja
Verði heimalið til þess að leik seinki eða framkvæmd hans misfarist skal dómari gera um það
athugasemd í leikskýrslu og skal BLÍ sekta viðkomandi lið um kr. 10.000.-
Undir þetta fellur eftirfarandi:
1. Net skal vera uppsett og frágengið 20. mín. fyrir leik
2. Netspírur, net og stigatöflur skulu vera í lagi og skv. reglum þar að lútandi.
3. Ritari, töflumaður, stigaritari og boltafólk skal vera tilbúið til starfa 15. mínútur fyrir leik.
Athygli er vakin á því að stigaritun og ritun leikskýrslu má helst ekki vera innt af hendi af sama
aðila. Mælst er til þess að boltafólk noti innanhússkó og það ráði við verkið.
4. Þrír keppnisboltar með réttum loftþrýstingi skulu vera til staðar 5 mínútum fyrir leik.
5. Tónlist skal vera til staðar um leið og leikvöllur er laus til undirbúnings leiks.
6. Eftir leik skal hringja inn úrslit á textavarp og skrá úrslitin í úrslitabók íþróttahússins og koma
þeim í tölvupósti til BLÍ. Það er oft hringt í íþróttahúsin nokkru eftir að leik er lokið og allir eru
farnir.
7. Stigaritari skal undirrita stigaskorblað undantekningarlaust. Mælst er til þess að sami aðili sjá
helst um stigatalninguna, slíkt er líklegra til að tryggja samkvæmni.
8. Skiptispjöld skulu vera til staðar hjá heimaliði.
Heimild til mótanefndar
Mótanefnd BLÍ er heimilt að breyta út frá reglugerð um fyrirkomulag Íslandsmóta ef ekki fæst
næg þátttaka til að fullnægja skilyrðum reglugerðarinnar.
Greinargerð:
Ljóst er að deildarfyrirkomulagið sem nú er í gildi er ekki nógu gott að mínu mati og mati margra
annarra. Sérstaklega hefur maður heyrt fólk vera hugsi um þetta þar sem of langt líður á milli leikja, og á
það sérstaklega við um landsbyggðarliðin í 1. Deildinni. Undanfarin ár hafa stundum liðið mánuður til
einn og hálfur mánuður á milli leikja sem er ekki nógu gott. Tillagan miðar ekki endilega að mikilli fjölgun
leikja heldur fjölgun liða í efstu deild og setja fram á skýran hátt hvernig lið geta fallið og unnið sig upp.
Tel ég að blakið á Íslandi muni stækka í náinni framtíð og er þetta leið að því markmiði.
Varðandi aukinn ferðakostnað félaganna á landsbyggði yrði opinn sá möguleiki að fækka ferðum. Það
yrði þó að vera þannig að í hvert sinn sem liðið ferðast til Reykjavíkur spilar það tvo leiki, og við sitthvort
liðið þar sem aðeins er um að ræða tvöfalda umferð í stað fjórfaldrar eins og nú er. Þetta er
samkomulagsatriði milli BLÍ og viðkomandi félags hvernig háttur verður á þessu, leikið
föstudag/laugardag eða föstudag/sunnudag eða laugardag/sunnudag.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn