Volleyball.is

Ítalska liðið Trentino Volley tryggði sér Evrópumeistartitilinn með 3-1 sigri á gríska liðinu Iraklis Thessaloniki. Leikið var í Prag í Tékklandi.

Mikasa

Fréttir

Trentino Volley Evrópumeistarar

Hávörn Trentino var öflug
Hávörn Trentino var öflug
Ítalska liðið Trentino Volley tryggði sér Evrópumeistartitilinn með 3-1 sigri á gríska liðinu Iraklis Thessaloniki. Leikið var í Prag í Tékklandi.

Liðin sýndu sparihliðarnar í leiknum en Ítalirnir voru einfaldlega sterkari þegar á reyndi. Leikurinn var í járnum framan af og virtist geta þróast í hvora áttina sem var. Liðin unnu hvort sína hrinu og í þriðju hrinunni fylgdust þau að í 12-12. Þá skildu leiðir og Trentino kláraði  leikinn með stæl - með 2 ásum. Með  liði Thessaloniki leikur sænska stjórstjarnan Marcus Nilsson. Leikurinn um bronsið var einnig spennandi en Rússarnir í Odinstovo náðu að knýja fram sigur á ítalska liðinu Macerata í 5 hrinu leik. Umgjörð leikjanna var frábær hjá Tékkunum og var O2 höllin í Prag full á öllum leikjunum. Það var svo sárabót fyrir heimamenn að landi þeirra Martin Lebl, leikmaður Macerata var valinn besti sóknarleikmaður keppninnar. 

Það voru því ítölsk lið sem sigruðu keppnina bæði í karla- og kvennaflokki í ár. Auk þess áttu Ítalir 2 lið af 4 sem kepptu til úrslita hjá báðum kynjum. Þetta sýnir svo ekki verður um villst að bestu deildir Evrópu eru á Ítalíu. 




Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn