Volleyball.is

Öldungamótið 2011 mun fara fram í Vestmannaeyjum. Þróttarar munu halda mótið í samvinnu við heimamenn og Öldungur verður Jón Ólafur Valdimarsson.

Mikasa

Fréttir

Vestmannaeyjar

Öldungamótið 2011 mun fara fram í Vestmannaeyjum. Þróttarar munu halda mótið í samvinnu við heimamenn og Öldungur verður Jón Ólafur Valdimarsson.

Að vanda var ákvörðun um næsta mótsstað tilkynnt á lokahófi Öldungamótsins. 4 umsóknir bárust um mótshaldið og því gætti mikillar spennu þegar niðurstaðan var tilkynnt. Öldungaráðið, sem samanstendur af Öldungum þriggja síðustu móta, tilkynnti þessa niðurstöðu. Í rökstuðningi með valinu kom fram að gerð var skoðanakönnun meðal þátttakenda á Mosöld og rúmur helmingur þeirra sem svaraði valdi Vestmannaeyjar sem fyrsta kost. Því má segja að lýðræðislega hafi verið staðið að málum. Þegar tilkynnt var um mótsstaðinn mátti heyra óánægjubaul margra og tók nokkra stund að koma ró á mannskapinn aftur. Það má vissulega finna ákvörðun Öldungaráðs ýmislegt til foráttu. T.d. má reikna með að kostnaður við þátttöku verði meiri en áður þar sem allir þurfa að leggja á sig ferðalag. Engin hefð er fyrir blaki í Vestmannaeyjum, þar er ekkert blakstarf, hvorki yngri né eldri iðkenda. Flytja þarf nánast alla starfsmenn mótsins til Eyja, alla dómara og líklega mikið af búnaði einnig þar sem eitthvað lítið mun vera til af slíku í Vestmannaeyjum. Þrátt fyrir þessa annmarka og skiljanlega óánægju þeirra sem stóðu að öðrum umsóknum var óþarfi að púa á niðurstöðuna sem fengin var á lýðræðislegan hátt. 

Þrótturum og Jóni Ólafi Valdimarssyni er mikill vandi á höndum. Þeir þurfa að sannfæra öldunga um að næsta mót standist þær kröfur sem gerðar eru og öldungar eru vanir. Passa þarf mjög vel uppá að kostnaður fari ekki úr böndum - sérstaklega í ljósi þess að allir þurfa að ferðast og sumir um mjög langan veg. Allir þurfa gistingu - engin heimalið. 

Það er ekkert launungarmál að margir renna hýru auga til mótahaldsins. Öldungamótið gefur vel í aðra hönd og hefur reynst mörgum blakdeildum mikil lyftistöng. Forsvarsmenn blakhreyfingarinnar hafa talað fyrir því að mótahaldið lendi frekar hjá þeim félögum sem hafa unglingastarf á sínum snærum. Þetta er til þess að fjármagnið sem Öldungamótið skilar nýtist íþróttinni sem best og stuðli að framgangi hennar. Vandséð er að slíkt gerist í Vestmannaeyjum. 

Þróttarar héldu síðast Öldungamót árið 2000 og gerðu það með glæsibrag. Það var þá stærsta Öldungamót síns tíma. Ekki er ástæða til að ætla annað en að svipað verði uppi á teningnum nú. 


Volleyball.is óskar Þrótturum til hamingju með að hafa fengið næsta mót og um leið velfarnaðar með framkvæmd þess.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn