Bensínið kláraðist
laugardagur 12.júní 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 139 - Athugasemdir (0)
Íslenska kvennalandsliðið tapaði öðrum 5 hrinu leik sínum í dag er liðið mætti Möltu.
Liðið lék 5 hrinu leik í morgun gegn Luxembourg sem tók rúmlega 2 klst. Sá leikur tók sinn toll og var það greinilegt á
síðari leik liðsins í dag. Stúlkurnar frá Möltu voru hinsvegar úthvíldar og gerði það gæfumuninn. Íslenska
liðið á að vinna Möltu á venjulegum degi en sá dagur var ekki í dag. Þrátt fyrir hetjulega baráttu í leiknum varð
íslenska liðið að sjá á eftir sigrinum til heimaliðsins í oddarhrinu sem tapaðist 14-16. Leikurinn stóð í 2 klst.
Eftir daginn í dag er ljóst að Ísland á enga möguleika á því að komast í úrslitakeppnina á næsta
ári en tvö efstu liðin úr riðlinum fara áfram.
Síðasti leikur liðsins er við Írland kl. 12.00 á morgun.




