Á sigurbraut
mánudagur 30.janúar 2012 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 77 - Athugasemdir (0)

Þetta er annar titill Marienlyst og þeirra bræðra á einni viku.
Marienlyst hóf keppnina með því að leggja Norðmennina að velli í 5 hrinum í hörkuleik. Því næst lá Middelfart 3 -
1 og loks Gentofte 3 - 2. Marielyst er því vel að sigrinum komið. Til upprifjunar má nefna að lið Middelfart kom til Íslands og vann örugglega sinn
riðil hér gegn HK og ÍF frá Færeyjum. Þetta er frábær árangur hjá þeim bræðrum og án efa toppurinn á
þeirra ferli. Volleyball.is óskar þeim bræðrum til hamingju með árangurinn.




