Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Bikarúrslit í Danmörku

Á sunnudag er leikið til úrslita í bikarkeppninni í Danmörku. Íslendingar eiga fulltrúa bæði í kvenna- og karlaleiknum. 


Leikirnir fara fram í Óðinsvéum. 

Karlaleikurinn hefst kl. 12.30 og þar eigast við lið Gentofte og lið heimamanna í Marienlyst. Tvíburabræðurnir Hafsteinn og Kristján Valdimarssynir leika með Maryenlyst. 

Til úrslita hjá konunum leika lið Holte, með Elsu Sænýju Valgeirsdóttur innanborðs, og "útlendingalið" Bröndby. Leikurinn hefst kl. 15.00 að íslenskum tíma.

Báðir leikirnir verða sýndir beint á netinu. Sjá www.kanalsport.dk.

Við vonumst að sjálfsögðu eftir sigri Íslendingaliðanna enda ættu þau að eiga ágæta möguleika í þessum viðureignum. 


Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn