Bikarúrslitaleikirnir í beinni sjónvarpsútsendingu

Formaður BLÍ Jason Ívarsson hefur í beinu viðtali við Volleyball.is skýrt frá því að bikarúrslitaleikirnir í blakinu verða sýndir í beinni sjónvarpsútsendingu. Þessar fréttir eru mjörg jákvæðar fyrir félögin og bikarkeppnina. Jason situr fyrir svörum í nýjum dálki Volleyball.is sem að hefur fengið nafnið ,,Fastur í netinu" og fer í loftið fljótlega.
Nú er bara að vona að áhorfendur fjölmenni á viðburðinn til þess að skapa réttu stemminguna. Það er í sjálfu sér ekki nóg að fá beinar sjónvarpsútsendingar ef stemmingin er ekki til staðar. Nú er bara að sjá hvernig fram vindur og hvort að stemming og stuð verði í Laugardalshöllinni þegar bestu blaklið landsins eigast við í stærstu leikjum tímabilsins.




