Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Birta með silfur

Sáttar við silfrið
Sáttar við silfrið
Stod Volley, lið Birtu Björnsdsóttur, endaði í öðru sæti í NCC (Nordic Club Championship) úrslitakeppninni. Leikið var á heimavelli Stod í Noregi. 

Ásamt Stod léku Holte og Bröndby frá Danmörku og Oslo Volley frá Noregi. Stod byrjaði vel með því að leggja Holte að velli í 5 hrinu leik. Liðið lá hinsvegar illa fyrir Oslo Volley í annarri umferðinni. Góður sigur á Bröndby í síðasta leiknum skilaði liðinu svo öðru sætinu á eftir Oslo Volley. Athyglivert að norsku liðin hirtu efstu sætin og skildu þau dönsku eftir í neðri sætunum.
Þetta er frábær árangur hjá Birtu og félögum í Stod. Volleyball.is óskar Birtu til hamingju með árangurinn. Birta hefur leikið með liðinu frá því sl. haust er hún gerðist atvinnumaður í íþróttinni.


Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn