Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Dregið í Bikarkeppni BLÍ - Bridgestone Bikarnum

KA menn gulir og glaðir
KA menn gulir og glaðir

Dregið verður í Bridgestone bikarnum á morgun. Í karlaflokki eru í undanúrslitum Þróttur R., Stjarnan, HK og KA en í kvennaflokki eru það lið KA, Þróttur N., HK og Fylkis sem berjast um bikarmeistaratitilinn.

Það verður fróðlegt að fylgjast með körlunum og þá sérstaklega KA en liðið hefur ekki unnið bikarmeistaratitill síðan 1992 þrátt fyrir að hafa leikið nokkrum sinnum til úrslita. Menn hljóta að spyrja hvort að tími KA sé genginn í garð en liðið vermir núna efsta sæti Mikasa deildar karla. KA hefur tvívegis orðið bikarmeistari 1991 og 1992 og það er spurning hvort að menn verði gulir og glaðir í Laugardalshöllinni þann 14. mars en fyrst þarf KA að hafa betur í undanúrslitum til þess að svo megi verða.

Það má líka búast við spennandi leikjum kvennamegin því að keppnin hefur verið með jafnari móti í vetur. Bikarmeistarar HK frá fyrra ári mæta án efa sterkir til leiks enda með marga af reyndustu blakmönnum landsins innanborðs. Þróttarastúlkur eru þó sýnd veiði en ekki gefin og það má líka búast við ýmsu af liði Fylkis.

 



en hvað með kvennalið KA?
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

hk-throttur_nes__30__1.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn