Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Jón Ólafur Valdimarsson fastur í netinu......

Jón Ólafur Valdimarsson er fastur í netinu. Við notum tækifærið og spyrjum hann spjörunum úr.

Það þarf varla að kynna Jón Ólaf fyrir blakáhugafólki enda hefur hann verið áberandi í blakstarfinu mörg undan farin ár. Jón Ólafur hóf feril sinn sem leikmaður með Þrótti Reykjavík og hefur hann lifað tímana tvenna á þeim bæ.  Hann hóf blakferilinn hjá Þrótti R um 12 ára aldurinn og hefur spilað tæpa 400 leiki með m.fl.ka. félagsins og orðið nokkrum sinnum Íslands- og bikarmeistari með félaginu.  Jón Ólafur var formaður blakdeildar Þróttar R til margra ára og hefur þjálfað yngri flokka og meistaraflokka félagsins.  Jón Ólafur þjálfar nú og spilar með Hamri í Hveragerði í blakinu.  Jón Ólafur er auk þess alþjóðlegur blakdómari og formaður dómaranefndar BLÍ.  Einnig er Jón Ólafur fyrrum stjórnarmaður hjá BLÍ og framkvæmdastjóri þess. Jón Ólafur er Öldungur 2011 en Þróttarar stefna á að halda næsta Öldungamót BLÍ í Vestmannaeyjum. Kom sú ákvörðum mörgum á óvart og því liggur beinast við að spyrja Jón Ólaf út í þá ákvörðun.

Þróttarar lögðu upp með þá hugmynd að halda mótið í Vestmannaeyjum. Af hverju þar?

Það eru nokkrar ástæður fyrir því.

Í fyrsta lagi er það íþróttaaðstaðan sem er til staðar í Eyjum.  Þar er hægt að setja upp 10 blakvelli í 3 samliggjandi íþróttahúsum sem er eiginlega nauðsynlegur fjöldi valla fyrir þá stærðagráðu sem öldungamót BLÍ er orðið.  Það er mikill kostur að geta boðið upp á þennan fjölda af völlum svo hægt sé að klára leikina að degi til og fólk hafi lausan tíma á kvöldin til að eiga góða stund saman utan vallar en það er stór liður í þessum móti að allir blakarar hittist og skemmti sér saman.

Það er einmitt önnur ástæðan fyrir því að hafa mótið í Eyjum.  Ég hef fundið fyrir því að það skapast yfirleitt betri stemmning hjá öldungablökurum þegar mótið hefur verið haldið úti á landi í minni bæjarfélögum það virðist  þjappa öllum saman og fólk er að skemmta sér saman allan tímann.  Auk þess er alltaf gaman að heimsækja staði sem fólk fer vanalega ekki til og spila blak á nýjum stöðum enda í fyrsta sinn sem öldungamót BLÍ verður haldið í Eyjum.  Og Eyjar er kjörinn staður fyrir öldungamót BLÍ enda er öll gistiaðstaðan aldrei meir en í 1 km fjarlægð og nóg af ýmiskonar afþreygingu í boði fyrir utan blakið og Eyjamenn eru sérfræðingar í að skemmta fólki sem sést best þjóðhátíð þeirra og ég get því lofað mikilli skemmtun í Eyjum.

Með því að hafa mótið í Eyjum vill maður í leiðinni koma Eyjamönnum aftur inn í blakið en þá hefur vantað undanfarin ár og vonandi nær þetta mót að fá einhverja blakara í Eyjum til frambúðar.  Þannig að maður vill líka nota mótið til að kynna blak fyrir Eyjamönnum með það að markmiðið að fá nýja iðkendur í blakið.  Það má segja að það hefur nú þegar tekist því hópur Eyjamanna hefur nú þegar tekið sig saman og byrjað að æfa sig fyrir næsta öldungamót og það verður forvitnilegt að sjá hve mörg lið þeir munu senda í mótið.

Síðan er þetta líka leið blakdeildar Þróttar R að sýna fram á það aðstöðuleysi  sem hún býr við í Reykjavík með táknrænum hætti að deildin þurfi að leita út fyrir höfuðborgina til þess að geta haldið mót að stærðargráðu og öldungamót BLÍ er.  En deildin hefur ekki aðgengi að eigin íþróttahúsi í sínu hverfi og fær mjög takmarkaða tíma úthlutaða frá ÍBR sem hefur gert það að verkum að mjög erftitt er að halda úti starfsemi deildarinnar eins og best væri kosið og sértaklega hefur þetta bitnað mikið á yngriflokkastarfinu.  En það má segja að Reykjavíkurborg er ekki mikið að styðja við blakíþróttina í samanburði við aðrar íþróttagreinar og það væri í sjálfu sér langt mál að rekja allt misréttið varðandi það hér en það sést kannski best að blak er ekki lengur til staðar hjá ÍS, Víkingi og Fram.

En til að taka þetta allt saman að þá var valið á Eyjum í þrenns konar tilgangi í fyrsta lagi að bjóða blakköldungum upp á sem besta keppnisaðstöðu með hámarksskemmtanagildi að leiðarljósi. Í öðru lagi að fá fleiri blakiðkendur á fleiri stöðum á Íslandi og að lokum vera með ákveðna táknræna gagnrýni á sinnuleysi Reykjavíkurborgar gagnvart blakíþróttinni.

En vantar ekki allt til alls í Eyjum? Verður ekki bara notast við fiskinet?

Það er ágætis blakbúnaður til staðar í Eyjum en þó ekki fyrir 10 velli þannig að við munum græja þann blakbúnað sem vantar upp á þannig að það verður lítið mál að bjóða upp á 10 blakvelli með góðum græjum svo það þarf nú varla að fara notast við fiskinet.

Eru til blakboltar í Eyjum?

Já, það eru til blakboltar í Eyjum, kannski ekki nýjasta týpan og fyrir 1000 manns en blakdeild Þróttar R mun að sjálfsögðu sjá til þess að það verður nóg af boltum í Eyjum til að keppa og hita upp með.  Svo geri ég nú ráð fyrir því að það verði alltaf einhver lið sem vilja koma með sýna eigin bolta.

Þannig að mótið verður haldið?

Já, það verður haldið ekki nema að einhverjar náttúruhamfarir munu herja á svæðið, eins og eldgos, eða eitthvað annað ófyrirsjáanlegt.

Nú ert þú að þjálfa Hamar. Er það næsta stórveldi?

He he, aldrei að vita. Kannski ekki eins og staðan er hjá þeim er í dag þar sem þetta er nú aðallega öldungahópur um 40 árin, virkur og skemmtilegur hópur sem hefur mjög gaman að spila blak en er nú meira í þessu til þess að hafa gaman af. Engu að síður stefnir karlaliðið að vinna 2. deildina í ár eftir að hafa gert góða hluti í efstu deildinni á seinasta öldung.  En liðið hélt sæti sínu þar eftir að hafa verið fært upp úr deild sökum forfalla annarra liða.  Ég veit samt að það er metnaður í gangi hjá Hamar svo það er aldrei að vita að þar myndi koma upp öflug blakstarfsemi ef annað íþróttahús yrði byggt í Hveragerði. Núverandi íþróttaaðstaða getur ekki boðið upp á næga tíma svo að hægt yrði að gera Hamar að stórveldi í blaki en þar fyrir er einnig öflug körfuboltastarfsemi en mannauðurinn er svo sannarlega til staðar þar til að búa til stórveldi í blakinu ef íþróttastaðan þar myndi batna.  Það var t.d. hugmynd að ef tvíburasynir hans Valda, Kristján og Hafsteinn, hefðu farið í nám hér heima en ekki í Danmörku að þá var hann með pælingu að reyna byggja upp 1. deildarlið í kringum þá svo í raun þarf ekki mikið til að gera Hamar að stórveldi.

Eiga Þróttarar von?

Já, já, Þróttarar eiga alveg von og menn þar á bæ alls ekkert á því að leggja þá sögufrægu deild niður og það verður gaman að sjá hvað minn gamli lærifarið í blakinu Leifur Harðarson gerir með meistaraflokkanna í ár.  Helsta vandamál deildarinnar hefur verið aðstöðuleysi og mjög takmarkað aðgengi að fjármagni sem deildin hefur í Reykjavík og forráðamenn þar á bæ hafa nú ekkert verið blakinu neitt sérlega hjálplegir, frekar öfugt ef eitthvað er. Ég á þá ekki við um forráðamenn Þróttar R, þeir hafa reynt að gera sitt besta sem í þeirra valdi er, heldur þá aðila sem sjá um íþróttamálin í Reykjavík í heild sinni, sbr. ÍBR, og ef það fer ekkert að lagast að þá er það helsta ógnin við að gera út af við blakið hjá Þrótti R.  Bara það að geta verið verið á jafnréttisgrundvelli varðandi tíma- og fjármagnsúthlutunar miðað við margar aðrar íþróttagreinar í Reykjavík myndi strax hjálpa sem og að geta fengið eigið íþróttahús fyrir félagið sem er búið að óska eftir í áratugi.  Enda er Þróttur R sennilega eina hverfisíþróttafélagið á höfuðborgarsvæðinu sem ekkert er með sitt eigið íþróttahús (Kannski ÍR líka) svo vonandi mun það hús rísa á næstu árum.

Eru blakarar með reglurnar á hreinu?

Já, allaveganna langflestir þeirra blakara sem eru að keppa í efstu deildunum enda voru haldinn nokkur dómaranámskeið í blaki seinasta tímabil sem hefur hjálpað mikið varðandi það. Það eru helst öldungatrimmliðin og aðrir byrjendur í blakinu sem eru ekki alveg klárir á blakreglunum.

Er tuðað of mikið?

Þetta fer svoldið eftir skilgreiningu á tuði.  Ef ég myndi miða við reynslu mína af því að dæma erlendis að þá má segja að tuðið sé mun meira hér en erlendis.  Þó held ég að tuðið hafi minnkað frá því sem áður var hér og sjálfsögðu eru sumir sem tuða meira en aðrir og ég kannski ekki sá saklausasti í því sem leikmaður hehe. Þetta fer líka hvers eðlis tuðið er og í sjálfu sér ekkert að því að leyfa mönnum að pústa í eina sek. Í fullu keppnisskapi og menn eru mjög mismunandi í tuðinu.  En það er dómarans að taka á því strax ef tuðið er farið yfir ákveðin velsæmismörk svo hann missi ekki tök á leiknum og kannski dómaranna sök að láta ákveðið tuð viðgangast.  Þetta er kannski eitthvað sem við Leifur höfum reynt að taka á þegar við erum að dæma enda verðum við að miða okkar dómgæslu við þau viðmið sem sett eru í alþjóðlegri dómgæslu sem m.a. er að taka strangt á öllu óþarfa tuði og kannski fyrir vikið ekki verið vinsælustu dómararnir en það hefur vonandi skilað sér til leikmanna og annarra dómara og maður sem dómari sem og leikmaður á ekki að taka tuði persónulega heldur einbeita sér að hafa hafa gaman af því að spila blak.



Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn