Fjóla í stuði
mánudagur 06.febrúar 2012 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 115 - Athugasemdir (0)

Ýmisstúlkur byrjuðu betur og unnu 2 fyrstu hrinurnar. Þá bitu Þróttarstúlkur í skjaldarrendur og náðu yfirhöndinni
í leiknum. Þær unnu svo næstu 3 hrinur og þar með leikinn. Fjóla Rut fór fyrir sínu liði eins og sönnum fyrirliða sæmir.
Hún gerði alls 25 stig í leiknum. Fjóla trónir á toppi stigalistans og með sama áframhaldi verður erfitt að velta henni af
stalli.




