Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Fréttir af ársþingi BLÍ

38. ársþing BLÍ fór fram laugardaginn 5. júní. Volleyball.is greinir frá því helsta sem fram fór.

Sama dag og ársþingið fór fram voru bæði karla- og kvennalandsliðið við æfingar og strandblaksnefndin stóð fyrir námskeiði í strandblaki. Það var því af nógu að taka þennan daginn og fréttaskrifarar volleyball.is þurftu að koma við á nokkrum stöðum. 

28 þingfulltrúar mættu á þingið sem telst í meðallagi. Ekki lágu mörg mál fyrir þinginu og var reiknað með frekar stuttu þingi af þeim sökum. Það varð þó ekki raunin. 2 tillögur bárust með skömmum fyrirvara og samþykkti þingið að taka þær á dagskrá. Þetta er alls ekki óþekkt á þingum BLÍ en hefur oft valdið ákveðnum vandræðum þar sem þingfulltrúar hafa ekki haft ráðrúm til að kynna sér tillögurnar til hlítar. Það er umhugsunarefni fyrir forsvarsmenn hreyfingarinnar hvort ekki sé rétt að herða tökin á þessu í þeim tilgangi að gera ársþingið markvissara.

Breytingar urðu á stjórn BLÍ en þeir Stefán Jóhannesson og Davíð Búi Halldórsson luku sínu 2  ára tímabili. Venju samkvæmt þurfti því að kjósa 2 stjórnarmenn. Davíð Búi gaf ekki kost á sér áfram  en það gerði Stefán hinsvegar. Auk Stefáns buðu sig fram Kristján Geir Guðmundsson og Lilja Margrét Hreiðarsdóttir. Kosningu hlutu þeir Stefán og Kristján Geir. Þeir taka því sæti í stjórn BLÍ næstu 2 árin. Varastjórn BLÍ var einnig kjörin en hún er óbreytt frá fyrra ári, skipuð þeim Hreggviði Nordahl, Valdimari Hafsteinssyni og Óskari Haukssyni. 


Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn