Fullt á strandblaksnámskeiðið um helgina
föstudagur 04.júní 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 103 - Athugasemdir (0)

Fyrsti hluti námskeiðsins hefst reyndar í kvöld með fyrirlestri. Á laugardag verða svo þrjár skorpur þar sem farið verður
í gegnum helstu atriðin í strandblakinu, s.s. tækni og taktík. Töluverður hluti námskeiðsins verður verklegur. Strandblakarar binda miklar vonir
við komu Peters, enda ekki á hverjum degi sem jafn færir þjálfarar koma til Íslands.
Helsta vandamálið í strandblakinu í dag er skortur á völlum. Kvöld eftir kvöld eru allir vellir uppteknir og fjöldi fólks sem
bíður eftir að komast að. Það er mikilvægt að huga að uppbyggingu fleiri valla til að íþróttin náði að breiða
úr sér á eðlilegum hraða. Þetta er verkefni sem stjórn BLÍ þarf að leggja áherslu á nú næstu misserin.
Fjallað er um heimsókn Peters til Íslands hér.
Peter Lyö á að baki atvinnumannaferil í strandblaki og varð hann danskur meistari í þrígang með bróður sínum Thomas. Besti
árangur hans á Evróputúrnum var 13 sæti árið 1997. Strandblaksiðkun hófst af alvöru í Danmörku árið 1991 og var
Peter meðal þeirra fyrstu sem lögðu stund á íþróttina þar.




