Fyrsta strandblakmótið um helgina
föstudagur 22.maí 2009 - Stefán Jóhannesson - Lestrar 83 - Athugasemdir (0)
Laugardaginn 23. maí verður haldið trimmmót í Fagralundi.
Landsliðin í strandblaki standa fyrir mótinu sem er hugsað sem fjáröflun fyrir ferð þeirra til Kýpur á Ólympíuleika
smáþjóða. Mótið hefst kl. 10.00 og verður leikið fram eftir degi. Blakarar hafa verið duglegir að notfæra sér góða
veðrið og hafa strandblaksvellirnir verið umsetnir nú síðustu daga.
Volleyball.is hvetur alla til að drífa sig í Fagralund á laugardaginn. Skráning fer fram á www.strandblak.is




