Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Góð byrjun hjá karlalandsliðinu

Karlalandsliðið lagði San Marino í fyrsta leik sínum í EM smáþjóða sem fram fer á Möltu.


Íslenska liðið fór rólega af stað í leiknum en náði að klóra sig til baka í fyrstu hrinunni sem tapaðist naumlega 24-26. Íslenska liðið vann þá næstu 25-23 og tók eftir það öll völd á vellinum. Góður 3 -1 sigur á San Marino sem oft hefur reynst okkur Íslendingum erfiður ljár í þúfu. Strákarnir mæta svo Möltu í kvöld og sigur í þeim leik tryggir Ísland inn í úrslitakeppnina á næsta ári. Byrjunarlið Íslands í gær var þannig skipað: Valur Guðjón, Emil, Róbert, Kristján, Hafsteinn og Brynjar. Luxembourg vann Möltu nokkuð örugglega í 3 hrinum.


Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn