Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Hola í höggi hjá Skúla

Skúli á golfvellinum. Mynd kylfingur.is
Skúli á golfvellinum. Mynd kylfingur.is
Gamla blakkempan Skúli Unnar Sveinsson fór holu í höggi á Dalvík.

Blakmönnum er margt til lista lagt eins og lesendur síðunnar þekkja vel. Margir þeirra hafa reynt fyrir sér á golfvellinum, sumir með góðum árangri. Skúli Unnar Sveinsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, og fyrrum leikmaður Þróttar R, gerði sér lítið fyrir og náði draumahögginu á fyrstu braut á Arnarholtsvelli við Dalvík. Frá þessu er greint í skemmtilegri frétt á kylfingur.is. Skúli var að leika völlinn í fyrsta sinn og byrjaði hringinn svona ljómandi vel - fór holu í höggi. Ekki fer sögum af því hvernig spilamennskan var eftir þetta högg.

Fyrir yngri lesendur síðunnar er rétt að geta þess að Skúli Unnar lék lengst af með Þrótti Reykjavík - í afar sigursælu liði með köppum eins og Leifi Harðarsyni, Gunnari Árnasyni, Sveini Hreinssyni ofl.. Hann var  um skeið einn af bestu blakdómurum landsins og sást oft í dómarastólnum. 

Volleyball.is óskar Skúla til hamingju með þennan merka áfanga.


Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn