Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Íslendingaslagur í Stod

Lið Stod Volley
Lið Stod Volley
Um næstu helgi fer fram úrslitakeppnin í Norðurlandamóti félagsliða. Konurnar leika í Stod í Noregi og karlakeppnin fer fram í Gentofte í Danmörku.

Íslendingar eiga tvo fulltrúa í kvennaflokki, Birtu Björnsdóttur og Elsu Sænýju Valgeirsdóttir. Birta spilar með norska liðinu Stod Volley og Elsa Sæný með Holte I.F. en liðin munu mætast í síðasta leik mótsins klukkan 15.00 á sunnudaginn.

Bæði Holte I.F. og Stod volley sigruðu alla sína leiki í síðustu umferð og verður því spennandi að fylgjast með framgangi liðanna í úrslitunum. Önnur lið í úrslitunum eru Oslo Volley (Noregur) og Brøndby BK (Danmörk).

Leikirnir verða ekki sýndir í beinni útsendingu en hægt er að fylgjast með stigaskori í beinni á http://www.poengliga.no/

Eftirfylgjandi er leikjadagskrá. Athugið að tímarnir eru á norskum staðartíma

 Föstudagur 

kl 17.30      Oslo Volley – Holte IF

kl 20.30      Stod Volley – Brøndby BK

 Laugardagur      

kl 13.00      Holte IF – Brøndby BK

kl 16.00      Stod Volley – Oslo Volley

 Sunnudagur      

kl 12.00      Oslo Volley – Brøndby BK

kl 15.00      Stod Volley – Holte IF



Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn