Jóna Guðlaug norskur meistari með UIS Volley
mánudagur 22.mars 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 180 - Athugasemdir (5)

Jóna Guðlaug og félagar fagna sigrinum
Lokaleikir norsku deildarinnar voru leiknir um helgina og stóð baráttan á milli meistara síðustu 7 ára, Koll, og UIS Volley frá Stavanger. Liðin mættust í "úrslitaleik" í Osló á laugardag sem lauk með frábærum 3 - 1 sigri UIS. Jóna Guðlaug fór á kostum í leiknum og gerði 13 stig. Til að tryggja sigurinn þurfti liðið þó að vinna sinn síðasta leik gegn Oslo Volley. Leikurinn fór fram í gær, sunnudag og lauk með öruggum sigri UIS.
UIS tókst þar með ætlunarverk sitt að verða norskur meistari. Mikið var lagt undir í byrjun, hópur góðra leikmanna var fenginn til liðsins og Tore Alexandersen, einn fremsti þjálfari Norðmanna var ráðinn til félagsins. Tore hætti svo með liðið fyrir nokkrum vikum eins og við greindum frá. Volleyball.is sló á þráðinn til Jónu og heyrði í henni hljóðið. "Heyrðu ég er nú bara enn að jafna mig á þessu. Þetta er nú einhver mesta snilldarhelgi sem ég hef upplifað. En við vorum búnar að vinna fyrir þessu!"
Jóna Guðlaug hefur nú náð þeim áfanga að verða meistari í 2 löndum. Fáir íslenskir blakmenn hafa náð þeim árangri. Það væri gaman að fá ábendingar frá lesendum um hverjir fleiri hafa náð þessum árangri.
Jóna vildi ekki gefa neitt upp varðandi framhaldið hjá sér - segir allt vera óráðið varðandi næsta vetur.
Volleyball.is óskar Jónu til hamingju með titilinn!




