Kalli flottur!
fimmtudagur 15.júlí 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 245 - Athugasemdir (1)

Karl var í viðtali í þættinum H og M á Rás 2 í gærmorgun. Þar fór hann yfir stöðu mála og fræddi
þáttastjórnendur og hlustendur um íþróttina. Þar kom m.a. fram að í fyrra voru alls um 300 manns sem stunduðu strandblak og nú eru
um 30 lið sem stunda íþróttina af kappi. Fyrir skömmu var svo umfjöllun um strandblakið og útbreiðslu þess í Fréttablaðinu,
á FM957 og einnig í Morgunblaðinu þar sem birt var heilsíðugrein. Afar jákvæð þróun hefur verið í strandblakinu og
nauðsynlegt að fylgja því vel eftir. Það er á ábyrgð BLÍ að styðja við bakið á íþróttinni og
nauðsynlegt að skrifstofa BLÍ og stjórn taki meiri þátt í þeirri vinnu sem unnin er á þessum vettvangi. Þótt Karl hafi
verið mest áberandi í þessu starfi hefur hann gott fólk með sér sem hefur gert þetta mögulegt. Má þar nefna Einar Sigurðsson,
Brynjar Pétursson, Þóreyju Haraldsóttur og Heiðbjörtu Gylfadóttur.
Enn er mikið verk óunnið í strandblakinu en línan hefur verið lögð og framtíðin er svo sannarlega björt. Því má svo
bæta við að Ísland mun taka þátt í forkeppni Ólympíuleikanna í fyrsta sinn síðar í sumar og er stefnt að
því að senda 2 karlalið og 2 kvennalið til keppni.



