Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Kvennalið HK fer í NEVZA keppnina

HK fagnar sigri sl. vetur
HK fagnar sigri sl. vetur
HK hefur skráð kvennalið sitt til leiks í NEVZA Club Championship keppnina. HK verður þar með fyrsta íslenska kvennaliðið til að taka þátt í keppninni. 

Lið HK varði Íslandsmeistaratitil sinn sl. vetur auk þess að vinna bæði deild og bikar. Til að viðhalda góðum árangri þarf sífellt að finna ný viðmið. Það er markmiðið með þátttöku HK í keppninni að "máta" sig við önnur meistaralið af Norðurlöndunum auk þess sem slík þátttaka hvetur leikmenn og aðstandendur félagsins til dáða. Ingibjörg Gunnarsdóttir, formaður blakdeildar HK, staðfesti í samtali við Volleyball.is að kvennalið HK myndi taka þátt í keppninni. Leikirnir fara fram dagana 5. - 7. nóvember. Leikstaður liggur ekki fyrir en líklegast verður að teljast að HK lendi í riðli sem leikinn verður í Danmörku. 

NEVZA Club Championship er arftaki Norðurlandamóts félagsliða og var sett á laggirnar í núverandi mynd árið 2007. Lið frá Svíþjóð og Danmörku hafa verið áberandi mörg í keppninni en Norðmenn, Finnar og Eistar hafa einnig sent lið, auk Íslands. 

Ísland getur  sent 2 lið til keppni bæði í karla- og kvennaflokki. Bæði Stjarnan og Þróttur R hafa tekið þátt í karlakeppninni (2008).  Volleyball.is er ekki kunnugt um þátttöku fleiri íslenskra liða að þessu sinni. 


Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

_mg_4747.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn