Leifur dæmir í Englandi
laugardagur 30.maí 2009 - Stefán Jóhannesson - Lestrar 69 - Athugasemdir (0)
Leifur Harðarson, alþjóðadómari, mun dæma leiki Bretlands og Tyrklands um helgina.
Liðin eigast við í tvígang og eru leikirnir liður í Evrópudeildinni (European League). Þrátt fyrir að Englendingar hafi tekið
stórstígum framförum má reikna með að Tyrkir séu of stór biti fyrir þá. Engu að síður má reikna með
hörkuleikjum á milli liðanna. Fylgjast má með leikjunum á Laola1.tv þar sem þeir verða sýndir í beinni útsendingu. Vonandi
fáum við að sjá eitthvað af Leifi í þeim útsendingum.
Volleyball.is óskar Leifi góðs gengis í þessu erfiða verkefni.




