Leifur stóð sig vel
þriðjudagur 11.maí 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 111 - Athugasemdir (0)
Úr leik Svía og Dana
Svíar unnu leikinn nokkuð örugglega 3 - 0 og reyndi ekki mikið á dómara leiksins. Leifur lenti hinsvegar í meiri vanda með heimferðina en vegna
öskugoss þurfti hann að fara í gegnum Glasgow og þaðan til Akureyrar.
Danir höfðu vænst betri úrslita í leiknum og ætluðu sér áfram í keppninni. Leikið er heima og að heiman og sigurvegarinn
úr þeim viðureignum kemst inn í riðlakeppnina. Í riðlinum bíða Rúmenía, Belgía og Slóvenía.
Danir þurfa nú að vinna útileikinn 3 - 0 með 19 stiga mun til að komast áfram. Miðað við frammistöðuna í fyrri leiknum
verður það að teljast borin von. Svíar eru með betra lið en Danir og unnu örugglega þrátt fyrir tefla ekki fram sínu besta liði.
Í liðið vantaði flesta atvinnumennina einhverra hluta vegna. Sænska liðið er byggt upp í kringum meistaraliðið Engelholm en 4 stúlkur úr
byrjunarliðinu kom þaðan. Íslendingar gátu fylgst með leiknum í gegnum volleyball.dk. Síðari leikurinn verður einnig í beinni
útsendingu á netinu af heimasíðu sænska blaksambandsins. Í sænska liðinu er m.a. Sara Petterson sem lék með unglingalandsliðum
Svía fyrir 2 árum m.a. gegn Íslandi. Petterson lék allan leikinn gegn Dönum og stóð sig vel.




