Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Leifur þjálfar Þróttara

Leifur Harðarson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla og kvenna hjá Þrótti Reykjavík.  

Þróttarar hafa leitað að þjálfara í nokkurn tíma eftir að ljóst varð að Michael Overhage myndi ekki halda áfram með karlaliðið. Frakkinn Quentin Cucuel sem þjálfaði kvennalið Þróttar mun einnig vera hættur. 

Leif Harðason þarf ekki að kynna fyrir blakáhugafólki en hann er fyrrum leikmaður Þróttar og þjálfari. Nú síðustu árin hefur Leifur einbeitt sér að dómgæslu enda verið einn albesti dómari landsins um langt árabil. Leifur þjálfaði mikið á árum áður með góðum árangri. Undir hans stjórn urðu Þróttarar Íslandsmeistarar árin 1996 - 1999. Hann tekur nú við báðum meistarflokksliðunum og ljóst er að framundan er mikið uppbyggingarstarf. Það er mikið verk sem bíður og ekki auðvelt. Vitað er að fjárhagur blakdeildarinnar hefur verið erfiður en Þróttarar hafa nú tryggt sér næsta Öldungamót. Það ætti að verða vítamínsprauta á starfsemi deildarinnar næstu árin. Það verður spennandi að fylgjast með leikmannamálum í framhaldinu en Þróttarar þurfa á því að halda að næla í nokkra leikmenn.


Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

stjarnan-throttur__53_.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn