Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Leikmaðurinn - Berglind Gígja Jónsdóttir

Íslandsmót yngri flokka BLÍ var haldið í Ásgarði nú um helgina. Fréttaritari Volleyball.is var á staðnum og tók nokkra keppendur tali.

Einkennandi samstaða virtist vera meðal þeirra sem fréttaritari ræddi við um það hversu skemmtilegt er að æfa blak og keppendur skemmtu sér vel á mótinu!
Berglind Gígja Jónsdóttir, HK



Berglind Gígja er 13 ára stelpa sem æfir blak með HK í Kópavogi. Hún æfir og spilar með 3. og 4. flokki. Berglind er búin að æfa blak frá því að hún var 6 ára gömul en hún segir að hún hafi byrjað að æfa út af systur sinni, Elsu SænýValgeirsdóttur, sem spilað hefur með danska úrvalsdeildarliðinu Holte I.F. en spilar nú með Frederiksberg Volley. Auk þess hefur hún spilað fjölda landsleikja fyrir Íslands hönd.

Berglind segir að helsta markmið sitt sé núna að halda áfram að æfa til að geta spilað með meistaraflokki. Það má þó segja að Berglind hafi nú þegar náð þessu markmiði því sama dag og þetta viðtal var tekið þá spilaði hún sinn fyrsta leik með meistaraflokki!

Aðspurð segir Berglind engan vafa leika á því hver sé með ljótustu tærnar innan raða HK. Hún nefnir þar Orra Þór en hann er einmitt bróðir Berglindar!

Volleyball.is óskar Berglindi til hamingju með afmælið og jafnframt með fyrsta leikinn sinn með meistaraflokki!



Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

hk-throttur_nes__45__1.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn