Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Meira af ársþingi BLÍ

Frá yngriflokkamóti sl. vetur
Frá yngriflokkamóti sl. vetur
Eins og fram hefur komið hér áður var vel mætt á Ársþing BLÍ sl. laugardag.  Fjörugar og góðar umræður fóru fram að vanda. Nokkur tími fór í að ræða málefni Öldungamóts BLÍ en öldungar lentu í vandræðum með þingið sitt á Egilsstöðum. Mæting þar var ekki nægjanleg til að það gæti breytt reglum - en að lágmarki þarf mætingu fyrir 40% félaga. Til að leysa úr málum verður settur saman vinnuhópur eða nefnd til að fara yfir reglugerð um Öldungamót BLÍ og skal BLÍ tilnefna 3 fulltrúa í þann hóp. Hópurinn mun svo skila af sér í haust eða vel tímanlega fyrir næsta Öldungamót. Með þessu vonast öldungar til að málefni þeirra komist nú í betri farveg.

Málefni yngriflokka og útbreiðslu voru mikið rædd á þinginu og greinilegt að mörgum þingfulltrúum finnst ekki nóg að gert í þeim málum. Ljóst er að stjórn BLí þarf að taka þau mál til endurskoðunar. Grunnskólamót hefur verið nefnt í því samhengi en lengi hefur staðið til hjá BLÍ að koma á slíkum mótum - en ekki orðið úr.

Stjórn BLÍ mun að líkindum kynna breytingar er varða umgjörð leikja og aðbúnað fyrir næsta haust. Jason Ívarsson, formaður BLÍ, sýndi þingfulltrúum nýjan bolta sem leikið verður með á næsta tímabili. Þá er gert ráð fyrir að notkun skiptispjalda verði skylda í efstu deild. Á þinginu kom einnig fram tillaga um að taka upp s.k. tæknileikhlé (e. technical timeout). Tæknileikhlé eru sjálfkrafa leikhlé í 1 mínútu þegar annað liðið hefur náð 8 stigum og aftur þegar annað liðið hefur náð 16 stigum. Þá var nokkur umræða um lofthæð í húsum en stjórn BLÍ hefur haft það til skoðunar að auka við kröfur um lágmarkslofthæð. Krafan í dag er 7 m í lægsta punkt en rætt hefur verið að fara með lágmarkið í 10 m.




Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn