MIKASA deild karla. Þróttarar lagðir í Ásgarði
fimmtudagur 25.febrúar 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 167 - Athugasemdir (0)
Stjarnan lagði Þrótt R í 5 hrinu leik (20-25,25-18,24-26,25-21,15-12).
Úrslit leiksins skiptu kannski ekki miklu máli uppá stöðu liðanna í deildinni en bæði liðin vildu vinna leikinn og var hart barist til
loka. Stjörnumenn mættu ekki til leiks í fyrstu hrinunni og Þróttarar komust á bragðið og unnu hrinuna sannfærandi. Stjarnan lagaði
stöðuna með því að vinna aðra hrinuna. Þeir voru svo komnir vel á veg með þá þriðju þegar yngri leikmönnum var
skipt inná. það er sjálfsagt mál að leyfa yngri leikmönnum að taka þátt og eiga þjálfarar liðanna að nýta hvert
tækifæri til þess. Skiptingarnar slökktu hinsvegar alveg viljann hjá Stjörnumönnum sem misstu hrinuna úr greipum sér og töpuðu 24-26.
Þróttarar skynjuðu nú möguleika á að landa sínum öðrum sigri í vetur. Þeir börðust eins og ljón og náðu
að halda í við heimamenn framundir 20 stigin. Eftir það seig á ógæfuhliðina hjá þeim og Stjarnan tryggði sér oddahrinu.
Oddahrinan varð spennandi og bæði lið áttu ágæta spretti en svo fór að lokum að Stjörnumenn höfðu betur, 15-12. Með sigrinum
komust Stjörnumenn í 10 stig en Þróttarar sitja áfram á botninum með 2 stig.
Emil Gunnarsson gerði 23 stig fyrir Stjörnuna og þjálfarinn Róbert Hlöðversson 22. Hjá Þrótti var þjálfarinn Michael
Overhage stigahæstur með 19 stig og Aron Bjarnason gerði 17 stig.




