Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

MK vann framhaldsskólamótið

MK vann lið MA í úrslitaleik í gær 2 - 0. 

Mótið er skemmtileg nýbreytni og gekk vel fyrir sig. 10 lið skráðu sig til leiks en 8 þeirra mættu í Smárann. Engu að síður tókst mótið vel og var almenn ánægja hjá krökkunum með þetta framtak. Það er Menntamálaráðuneytið sem stendur fyrir íþróttaátaki í framhaldsskólum og er mótið liður í því. 

Leikið var með óvenjulegu sniði þar sem liðin voru blönduð með 3 piltum og 3 stúlkum. Lið MK og MA reyndust svo sterkust í þau tefldu fram nokkrum leikmönnum sem leikið hafa í 1. deildinni í vetur. MK vann svo úrslitaleikinn eins og áður segir nokkuð örugglega.

Mótið er góð viðbót við mótahald vetrarins og vonandi verður framhald á. 



Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn