Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Nýrrar nálgunar er þörf

Frá hæfileikabúðum BLÍ
Frá hæfileikabúðum BLÍ

Það er ljóst að eftirtekja íslensku unglingalandsliðanna er rýr eftir að núverandi Norður Evrópumóti unglingalandsliða pilta og stúlkna U-19 ára lauk um helgina. Stjórn Blaksamband Íslands verður að setjast yfir málin og skoða þau frá grunni og skoða hvað betur má fara, en þess ber að geta að U-19 liðin áttu ágæta spretti inn á milli en sveiflurnar voru greinilega of miklar til þess að árangur næðist.

Það verður hins vegar að taka með í reikninginn að sumir þessara leikmanna eru að stíga sín fyrstu skref og það kom berlega í ljós að íslensku liðin vantar meiri leikreynslu og það er greinilega þörf á fleiri alvöru leikjum áður en haldið er í alþjóðleg mót. Þetta eru svo sem engin ný sannindi, en við getum hins vegar velt því fyrir okkur hvort að tæknin og grunnþjálfunin sé sambærileg og hjá hinum Norðurlandaþjóðunum. Við verðum einnig að spyrja hvort núverandi fyrirkomulag þrói langtímagetu leikmanna og skili framtíðar A-landsliðsmönnum? Þetta er sennilega eitt af lykilatriðunum, en fleira stendur útaf, t.d. reka Svíar, Finnar og Norðmenn sérstaka framhaldsskóla þar sem að unglingunum er smalað saman þar sem þau stunda nám og æfa blak allan veturinn. Það má því ljóst vera að samkeppnisforskotið er mikið hjá leikmönnum þessara þjóða en þeir hafa þess utan betri tækni og meiri leikreynslu.

Á sama tíma eru íslensku unglingaliðin að hefja undirbúning nokkrum vikum fyrir mót. Það er í lófa lagið að leiða út framhaldið og fá út hvernig okkar liðum reiðir af í harðri samkeppni. Það breytir engu hvað þjálfarinn heitir eða hversu góður hann er þegar þjálfun og undirbúningur eru alltaf takmarkandi þáttur í starfinu. Það hlýtur því að vera réttlát spurning hvort þetta þurfi að vera svona?

Gæði starfssins eru oft mæld í þeim árangri sem að landsliðin ná og það hlýtur að vera íslensku blakfélögunum og Blaksambandinu áhyggjuefni að hafa skrapað botninn í NEVZA samstarfinu enn eitt árið. Við eigum að hafa meiri metnað og við eigum að rækta unglinganna til framtíðar og ná árangri með þeim í gegnum áþreifanleg markmið. Afreksstarfið á að vera krefjandi og lúta stefnu til næstu 4-8 ára þar sem afrekshópar eru myndaðir skipulega og þeim stýrt markvisst með það fyrir augum að eignast samkeppnishæfa leikmenn.

Það er líka umhugsunarefni hvort að þessi NEVZA mót skili nægjanlegu miklu til baka miðað við fjárfestinguna og spurning hvort það sé hreinlega ekki betra að gera út á unglingalandsliðsstarfið á vorin þegar starfið er í hámarki. Það er líka eðlilegt að spyrja hér hvort að það sé vit í því að láta unglingana vera í limbói í 4 - 5 mánuði án nokkurar keppni og síðan er haldið beint í mót? Hér er t.d. athugunarefni hvort að BLÍ geti haldið alþjóðleg mót á Íslandi til þess að auka áhugann og gefa unglingum meiri tækifæra til þess að takast á við jafnaldra sína. Auðvitað er hér um að ræða metnaðarfullt markmið sem betra er að skrifa um en framkvæma.  Það er klárt mál að það er erfitt að byrja tímabilið með þvi að undirbúa lið til keppni eftir að hafa verið í löngu fríi. Blaksambandið og félögin mega ekki sofa á sumrin það er tími undirbúnings og vinnu.

Lykilspurningin er hvort hægt sé að breyta þessum dagsetninum innan NEVZA og athuga hvort að hægt sé að fá þetta til þess að falla betur að hápunkti leiktímabilsins hérna heima, en auðvitað hafa menn stöðugar áhyggjur af skólastarfinu á þessum tíma.  Þessu eru líka misjafnt farið hjá samstarfsþjóðunum, en menn verða að hafa fyrir hlutunum og sjá hvað er hægt að gera til þess að nýta tíma og fjármuni betur. Það gengur heldur ekki að sitja með hendur í skauti sér og sætta sig við núverandi ástand til langframa. Það er ekki ávísun á velgengni eins og við höfum fengið að reyna í áratugi í þessu samstarfi.

Það er ljóst að efnahagur Blaksambandsins er með þeim hætti að það er varla hægt að halda úti landsliðsstarfi svo vit sé í og ljóst að Ísland hefur náð botninum og þaðan er einungis hægt að stefna hærra. Það er eðlilegt að spyrja hvað sé að í starfinu þegar að unglinga- og A-landslið Íslands hafa skilað af sér árinu 2010 og þegar rýnt er í tölfræðina þá sést glögglega að eftirtekjan er rýr. Við eigum góð íþróttamannvirki og höfum flest en það vantar meiri aga og forystu til þess að knýja á um umbætur.

Afreksstarfið á aldrei að lúta ,,málamiðlunum" en þess ber að geta að sérsamband eins og BLÍ hefur ekki úr miklu að spila og starfið snýst því að miklu leyti um málamiðlarnir og það er hinn kaldi veruleiki. Það þýðir hinsvegar ekki að ekki sé hægt að gera betur það verður alltaf að vera markmiðið.

 

 

 



Það þýðir ekki að væla eftir hvert einasta mót yfir því að unglingalandsliðin fari út og skili engum árangri. Menn verða að gera eitthvað. Hingað til hefur bara verið talað en ekkert gert. Undanfarin 4-5 ár hefur undirbúnigurinn fyrir mótin verið nákvæmlega eins. 2-4 æfingahelgar og ekkert meira. Svo eru leikmennirnir sem eru fyrir sunnan látnir æfa saman inn á milli og þeir sem búa út á landi komast ekki. Ef Blaksambandið vill fara að sjá eitthvern árangur þá verða þeir að fara að gera eitthvað í sínum málum. Það er líka hreinlega spurning hvort það þurfi bara ekki að fara að skipta út þessum mannskap innan blaksambandsins, það virðist allavega ekkert vera að koma frá þeim. En hvað varðar þróunina hérna á íslandi þá er hún heldur ekkert það góð. Þessir krakkar geta ekki veriða að spila endalaust á litla velli og 4 í liðið, takandi undirhandaruppgjafir. Komandi í mót til að hafa gaman. Maður nær engum árangri þannig. Svo er þessum krökkum bara skellt í 6 manna blak á svipuðum tíma og þau eru gjaldgeng í U-17 landsliðin. Þá hafa þau varla reynslu á því að taka almennilegar uppgjafir. Það þarf að fara að hrista upp í þessu öllu saman ef við ætlum að ná eitthverjum árangri. Menn verða bara að sætta sig við það að við erum ekki að ná árangri með þessum hætti.
Sæl verið þið
ég held því fram að við þurfum að fjölga mótum, jafnvel reyna að koma á gagnið landshlutamótum sem BLÍ stendur fyrir því það er of langt fyrir liðin að vestan að ferðast austur og öfugt á mikið fleirri mót en eru í dag og það hefur sýnt sig núna seinustu ár að félagsliðin út á landi sérstaklega, keyra ekki landshlutamótin svokölluðu áfram. Annað sem ég vill benda á er að landsbyggðarfólkið hefur oft staðið stæðstan hlut af ferðakostnaði á æfingar og slíkt sjálf. þetta er eitthvað sem ég veit að líðst ekki í mörgum öðrum samböndum og þá er ég ekki bara að tala um KSÍ og þykir mér miður að það hafi verið tekin af sá valkostur "hefð" sem hefur verið seinustu ár að hóparnir gisti saman á meðan fyrstu æfingum stendur. Þessir hlutir gera t.d krökkum sem koma úr litlum liðum utan af landi töluvert auðveldara fyrir að kynnast hópnum.
Frábær grein, gott að þetta sé loksins orðið opinbert fyrir öllum! Það sem ég tel að þurfi að bæta úr er eins og strákarnir segja, að byrja fyrr að spila sex manna blak og að hafa fleiri mót svo yngri leikmenn öðlis meiri leikreynslu. Maður öðlast enga rosalega reynslu á því að fara á aðeins eitt alþjóðlegt mót á ári. Annað sem mér finnst vanta er markaðsnefnd hjá blí sem safnar bæði styrkjum fyrir félögin og landsliðin. Mér finnst algjörlega óásættanlegt að leikmenn séu að reyna að redda sér styrkjum, ég tala nú ekki um 2 vikum fyrir mót! Það eru mörg fyrirtæki sem velja sér eitt eða fleiri málefni sem þau ætla að styrkja yfir árið og ég veit ekki til þess að blí hafi nokkurn tímann sótt um slíka styrki. Það er heldur ekkert eðlilegt við það að leikmaður sé að kaupa nýja utanyfirgalla fyrir landsliðin því fólkið hjá blaksambandinu hefur ekki trú á því að það sé hægt. Held að við þurfum öll að leggjast saman á eitt og reyna að breyta þessu svo framtíðar blakarar á íslandi hafi meiri möguleika!
Alltaf gott thegar thad koma umrædur eftir svona mót. Thad er engin vafi á ad vid erum langt á eftir hinum nordurlanda thjódunum en okkur hefur farid mikid fram. Nú thekki ég ekki alveg nógu vel til starfsins heima en thad er margt gott ad gerast i morgum klubbum thar sem klubbarnir taka hlutana i eigin hendur t.d vid ad senda yngri flokka lid á mót erlendis, t.d Thróttur N (man ekki hvada mót heitir) og Afturelding kom med kids volley krakka til Dk. Eda thjálfarar sækja thjálfunarmenntunar erlendis. Ég er alveg sammála Hilmari med ad thad er oft erfitt ad skapa lidsheild thegar leikmenn búa ekki saman á æfingarhelgum og hittast sjaldan. Hvernig væri ad halda æfingarbúdirnar fyrir leikmenn landslida á sama stad(unglinga + A-lid) og ekki bara rétt fyrir mót? T.d helgi á laugarvatni eda álíka stad, thar sem hægt er ad búa og æfa. Og ad thessar æfingar eru á hærra plani en thad er í klúbbunum. Thad yrdi bodid upp á kennslu fyrir unglingalidin td í lyftingum, matarrædi - undarbúa thau fyrir thad ad æfa á hærra plani. Thetta yrdi á sama tíma hvert ár med thad ad markmidi ad thjálfarar og leikmenn hittast og get lært af hver odrum og komid aftur í klúbbana med eitthvad nýtt til ad verda betri og halda í áhugan og neistan fyrir íthróttina! Fjolgun mót er líka gód hugmynd, landshluta mót yrdi gód lausn thar sem thad sparar ferdakostnad. Ingibjorg hefur verid rosalega oflug i starfi fyrir kvennalandslidid undanfarin ár vid ad finna fjároflunar moguleika svo thad yrdi frábært ef blaksambandid haldid utan um thad starf.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn