Öldungamótið tókst vel
mánudagur 17.maí 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 176 - Athugasemdir (0)
þróttur Nes vann 1. deild karla
Mótið er það stærsta frá upphafi, með 125 þátttökuliðum. Leiknir voru um 370 leikir á 2 1/2 degi. Til þess þurfti 9
velli og reyndar var notast við salinn á Reykjalundi á fimmtudaginn. Með svo marga velli er hægt að framkvæma svona stórt mót án þess
að leika þurfi fram eftir kvöldi eða að nóttu til eins og tíðkaðist hér á árum áður. Aðstaða þeirra
Mosfellinga er mjög góð þar sem allt er til staðar á sama blettinum. Mikill fjöldi sjálfboðaliða kom að mótinu og
dómgæslan var í höndum landsliðsfólks líkt og undanfarin ár. Einhverjar athugasemdir bárust vegna dómgæslunnar en hún gekk
mestanpart mjög vel, sérstaklega í efri deildunum, en þar voru vönustu dómararnir. Það getur verið erfitt að dæma leiki í
neðrideildunum og oft þarf að slaka á kröfum um tækni til þess að dómarinn sé ekki alltaf að flauta.
Það er ástæða til að óska blakdeild Aftureldingar, með Öldunginn Gunnu Stínu í fararbroddi, til hamingju með gott
mót. Vonandi mun afrakstur mótsins skila sér í kraftmiklu starfi á komandi árum. Starfi sem á endanum mun skila liði í efstu
deild.




