Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Öruggur sigur á Möltu - komnir inn í lokakeppnina

Íslenska karlalandsliðið fylgdi vel eftir góðum sigri á San Marino í gær. Liðið vann í dag öruggan sigur á gestgjöfunum frá Möltu 3 - 0 (25-17,25-16,25-22).

Með sigrinum er öruggt að Ísland lendir í öðru af tveimur efstu sætum riðilsins og fer þar með í úrslitakeppnina sem fram fer í Andorra á næsta ári. Þetta er frábær árangur hjá strákunum, ekki síst í ljósi þess að liðið mætti töluverðu mótlæti við undirbúninginn. 

Að sögn landsliðsþjálfarans, Michael Overhage, var aldrei spurning hvoru megin sigurinn lenti í dag. Ísland var betra liðið á öllum sviðum. "Við réðum leiknum frá fyrsta stigi til hins síðasta. Góð móttaka, og frábær hávörn lagði grunninn að góðum sigri. þá var Valur Guðjón Valsson, uppspilari liðsins öflugur í dag og dreifði spilinu eins og herforingi. Það er ánægjulegt, ekki síst í ljósi þess að hann náði einungis að æfa með liðinu í viku fyrir keppnina". Íslenska liðið gat leyft sér að skipta varamönnum inná í leiknum og hafa nú flestir leikmenn komið við sögu á mótinu. 

Á morgun mætir liðið svo Luxembourg í hreinum úrslitaleik en Luxembourg hefur unnið báða sína leiki líkt og Ísland. 




Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

_mg_4798.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn