Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Power Cup

Hið árlega Power Cup mót fer nú fram í Seinajöki í Finnlandi. 900 lið taka þátt, nálægt 7.500 leikmenn. 

Power Cup er líklega stærsta blakmót sem haldið er í heiminum ár hvert. Mótið er fyrir krakka og unglinga á aldrinum 7 - 22 ára. Leikið er í aldurs- og styrkleikaflokkum. Power Cup hefur notið gífurlegra vinsælda í gegnum árin eins og þátttakan ber með sér. Íslensk félög hafa nokkrum sinnum tekið þátt í mótinu, m.a. Þróttur Nes. 

Leikið er hefðbundið blak á grasvöllum. Veðrið hefur því mikið að segja hvernig til tekst en alla jafna er gott veður á þessum tíma í Finnlandi. Það er þó ekki á vísan að róa í þeim efnum og mikil rigning setti svip sinn á leiki laugardagsins. Það dregur þó ekki úr ánægjunni hjá unga fólkinu. Skemmtileg umgjörð og andrúmsloft einkennir keppnina og unga fólkið fer heim með skemmtilegar minningar fyrir lífstíð.  


Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn