Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Spjöldin á loft

Stjarnan lagði Þrótt í MIKASA deild karla í gærkvöld 1 - 3 (25-23,21-25,22-25,24-26).


Eins og tölurnar bera með sér var um hörkuleik að ræða og hefðu úrslitin hæglega getað orðið önnur. Róbert Hlöðversson, þjálfari Stjörnumanna, var veikur heima en í hans stað kom bróðir hans Vignir sem verið hefur frá í nokkurn tíma vegna bakmeiðsla. Vignir stóð fyrir sínu að vanda og skoraði mikilvæg stig fyrir Stjörnuna þrátt fyrir að vera ekki í sínu besta formi. Hjá Þrótti vantaði Guðmund P. Guðmundsson á kantinn en í hans stað lék Halldór Ingi Kárason sem alla jafnan leikur í stöðu frelsingja. Guðmundur jafnar sig nú eftir aðgerð á öxl og hann mun missa af nokkrum leikjum Þróttar í viðbót.

Þróttarar, sem hafa byrjað mótið afar illa, unnu fyrstu hrinuna og útlitið bara nokkuð gott með Stjörnuliðið "laskað" hinum megin netsins. Adam var þó ekki lengi í Paradís og Stjörnumenn börðust vel í næstu hrinum. Því til viðbótar jókst pirringur Þróttara við mótspyrnuna. Stjarnan landaði góðum sigri í 2. hrinu og fór vel af stað í þeirri þriðju. Um miðbik hrinunnar þurfti dómari leiksins, Jóhannes Stefánsson, að sýna Þrótturum gula spjaldið í tvígang fyrir óíþróttamannslega hegðun, fyrst Sævar Már Guðmundsson fyrirliði Þróttar og síðan Quentin Cucuel. Þetta kostaði 2 stig sem reyndust dýr þar sem hrinan tapaðist 23-25. Í 4. hrinunni komu Þróttarar sterkir til baka og höfðu hana í hendi sér lengst af. Á ótrúlegan hátt tókst þeim að kasta henni frá sér og þar með leiknum. Þróttarar geta nagað sig í handarbökin fyrir að hafa ekki komist lengra með Stjörnumenn sem léku með "vængbrotið" lið. 

Stjörnumenn gerðu vel í klára leikinn og sérstaklega er ánægjulegt að sjá yngri leikmennina eins og Geomar Orban, uppspilara, taka fullan þátt í leiknum og standa vel fyrir sínu.


Dómari leiksins Jóhannes Stefánsson átti ekki góðan dag. Það gleymdist í umsögn leiksins hér að ofan.
Nafnlaust
Alltaf gaman að sjá nafnlaus komment við fréttum. Verður til þess að maður trúir ekki því sem sá nafnlausi segir og heldur hið gagnstæða.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn