Strandblakið á landsmótinu
þriðjudagur 14.júlí 2009 - Lilja Margrét - Lestrar 141 - Athugasemdir (0)

Mynd: Álfheiður Magnúsdóttir
Í úrslitaleik kvenna mættu núverandi Íslandsmeistarar, Laufey og Lilja, fyrrverandi meisturum, Þórey og Heiðu. Það var hart barist í þeim leik og var skammt stórra högga á milli. Þórey og Heiða byrjuðu betur fyrstu hrinuna og náðu upp góðu forskoti. Lilju og Laufeyju tókst þó að saxa á forskotið, en ekki nægjanlega því þær töpuðu henni 21-17. Önnur hrinan var ekki í mikilli hættu heldur, en nú á hinn veginn því að Íslandsmeistararnir ætluðu ekki að gefa sitt eftir átakalaust og unnu þær aðra hrinuna 21-11. Staðan í hrinum því 1-1. Það var ekkert gefið eftir í oddahrinunni, en Þórey og Heiða áttu betri lokasprett og unnu hrinuna örugglega 15-5 og tryggðu þær sér þar með landsmótstitilinn annað skiptið í röð.
Hjá körlum mættust núverandi Íslandsmeistarar, Einar og Brynjar þeim Karli og Emil. Strax í upphafi hrinunnar lentu Íslandsmeistararnir í vandræðum, meðal annars út af baneitruðum uppgjöfum Emils og náðu þeir Karl góðri forrystu. Brynjar og Einar létu það ekki stoppa sig og náðu að minnka forskotið niður í einungis 2 stig í stöðunni 17-19. Þá gerðist það óhapp að Brynjar slasaðist á ökkla, en hann hefur lengi átt við slík meiðsli að stríða. Hann lét það nú samt sem áður ekki stoppa sig, heldur lét tjasla ökklanum saman með límbandi og haltraði inn á völlinn aftur. Þetta varð þó til þess að þeim Brynjari og Einari tókst ekki að bæta við sig fleiri stigum og töpuðu þeir fyrri hrinunni 21-17. Karl og Emil höfðu einnig sigur í annarri hrinu gegn hinu laskaða liði Íslandsmeistaranna og unnu því leikinn 2-0. Íslandsmeistararnir náðu þó inn 16 stigum og verður það að teljast afar góð frammistaða þar sem Brynjar átti greinilega mjög erfitt með að stíga í slasaði fótinn og spilaði því sem næst á einum fæti alla hrinuna. Sannur íþróttaandi þar á ferðinni og eiga þeir hrós skilið fyrir vasklega framgöngu þar sem flestir hefðu þurft að hætta í miðjum leik í þeirra sporum.
Í þriðja sæti karla voru bræðurnir Hafsteinn og Kristján Valdimarssynir, en hjá konum lentu hinar ungu, en mjög svo efnilegu Harpa og Auður í 3. sæti.
Þetta mót sýndi það og sannaði að enginn er öruggur um sinn titil og er nokkuð víst að hart verði slegist í þriðja og síðasta stigamótinu ásamt Íslandsmótinu.




