Tap gegn Írum í lokaleik
sunnudagur 13.júní 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 114 - Athugasemdir (0)
Íslenska kvennalandsliðið lauk þátttöku sinni í EM með því að tapa naumlega fyrir Írlandi 3-2,
(13-25,21-25,25-22,26-24,15-13).
Fyrir leikinn var ljóst að hvorugt liðið ætti möguleika á því að komast áfram uppúr riðlinum. Leikurinn skipti
því ekki miklu máli en keppt var um stoltið og hvorugt liðið hafði áhuga á að snúa heim án sigurs. Íslenska liðið
fór vel af stað og allt leit út fyrir stórsigur hjá íslensku stúlkunum. Liðið komst nokkuð auðveldlega í 2 - 0 en þá
fór að halla undan fæti. Írsku stúlkurnar börðust eins og ljón og léku þær án efa sinn besta leik í mótinu.
Þær grænklæddu náðu að koma sér inn í leikinn á ný og mörðu fram oddahrinu. Ísland komst í 12 - 7 og að
öllu eðlilegu hefði það átt að duga til sigurs. En reynsluleysið í liðinu varð því að falli og Írarnir náðu
að klóra inn stig og jöfnuðu í 13 - 13. Þær gerðu svo 2 síðustu stigin og tryggðu sér sigurinn, sinn eina í mótinu.
Íslensku stúlkurnar sátu eftir með sárt ennið en liðið náði ekki að vinna leik í mótinu. Engu að síður
lék liðið prýðilega á löngum köflum en það dugði ekki til. Þær Fríða Sigðurðardóttir og Jóna
Guðlaug Vigfúsdóttir spiluðu mest af íslensku stúlkunum og skiluðu sínu hlutverki mjög vel. Margir ungir leikmenn eru í liðinu og
á það svo sannarlega framtíðina fyrir sér. Nýliðinn Hjördís Eiríksdóttir lék stórt hlutverk í liðinu
og má segja að hún hafi lent í djúpu launinni - og hún skilaði sér að bakkanum. Rétt er að geta þess að allir leikmenn
liðsins fengu tækifæri í dag. Þrátt fyrir að ekki næðist betri árangur að þessu sinni er framtíðin hjá
kvennalandsliðinu björt enda sjaldan verið annar eins fjöldi leikmanna sem þjálfarinn getur valið úr.
Liðið er væntanlegt til Íslands á morgun.
Luxeumbourg og San Marino hirtu 2 efstu sætin í riðlinum og munu því leika til úrslita ásamt Kýpur og Liechtenstein á næsta
ári.



