Þjálfararanámskeið hjá BLÍ
þriðjudagur 31.ágúst 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 144 - Athugasemdir (1)
BLÍ stendur fyrir þjálfaranámskeiði dagana 3. - 5. september.
Nánari upplýsingar um námskeiðið má nálgast á heimasíðu BLÍ. Á námskeiðinu verður boðið
uppá kennslu í hefbundnu blaki og eins í krakkablaki. Auk þess verða flutt erindi um næringu íþróttamanna og markmiðasetningu.
Aðalkennarinn á námskeiðinu verður Englendingurinn Peter Guernari en auk þess að þjálfa hefðbundið blak er hann sérfræðingur
í þjálfun í sitjandi blaki. Hann mun fræða íslenska þjálfara um þá íþrótt. Skráning á
námskeiðið mun vera góð og allt stefnir spennandi helgi hjá blakþjálfurum. Það ber að fagna þessu framtaki hjá BLÍ,
sérstaklega yngriflokka nefndinni, enda alltof langt síðan haldið hefur verið námskeið fyrir þjálfara. Blaksambandið hefur ekki staðið
sig sem skyldi í þeim málaflokki.
Samhliða námskeiðinu verða haldnar hæfileikabúðir fyrir krakka í 3. flokki og eldra árinu í 4. flokki. Að helginni lokinni verður
svo valið í U17 landsliðin sem munu keppa á NEVZA mótinu í Danmörku í Október.
U19 landsliðshóparnir munu einnig koma saman til æfinga og verður helgin notuð til að velja endanlegan hóp fyrir NEVZA mótið í
Svíþjóð í lok september.
Þjálfarar eru þeir Apostol Apostolov sem þjálfar stúlknaliðin og Zdravko Demirev sem þjálfar piltana.




