Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

Tvöfaldur sigur HK

Karla- og kvennalið HK unnu örugga sigra í gær.
Karlalið HK vann öruggan sigur á Íslandsmeisturum Þróttar 3 - 0 (25-16,25-11,25-12). Leikið var í Fagralundi. Eins og tölurnar bera með sér varð leikurinn aldrei spennandi - til þess voru yfirburðir HK of miklir. Leikcurinn varð aldrei rismikill en HK drengir gerðu það sem þurfti til að klára Þróttarana. Meistararnir hafa farið illa af stað í vetur og greinilegt að blóðtakan frá síðasta vetri er of mikil fyrir liðið. Stigahæstir hjá HK voru þeir Ivo Bartkevitcs með 15 stig og Brynjar Pétursson með 12 stig. Hjá Þrótti var þjálfarinn Michael Overhage atkvæðamestur með 9 stig. Með sigrinum tyllti HK sér á topp MIKASA deildarinnar.

Í MIKASA deild kvenna tók Ýmir á móti HK en þessi lið deila heimavelli í Fagralundi. HK vann leikinn 0 - 3 (17-25,25-27,12-25). Sigur HK var ekki óvæntur en lið Ýmis kom þeim á óvart með góðri baráttu og fengu HK stúlkur því að hafa fyrir sigrinum. Með smá heppni hefði Ýmir getað klárað aðra hrinuna en þær leiddu hana lengst af. Stigahæstar í liði HK voru þær Ingibjörg Gunnarsdóttir og Velina Apostolova með 7 stig hvor. Hjá Ými voru þær Bylgja Stefánsdóttir og Ásta Sigrún Gylfadóttir einnig með 7 stig hvor.
HK stúlkur sitja nú á toppi MIKASA deildarinnar.




Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn