Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Fréttir

UMSK með tvöfaldan sigur á Landsmóti UMFÍ

Sigurlið UMSK
Sigurlið UMSK
Blakliðin frá UMSK komu sáu og sigruðu á Landsmóti UMFÍ á Akureyri. Karlaliðið, sem að mestu var skipað ungum leikmönnum úr HK, auk Emils Gunnarssonar úr Stjörnunni, vann alla sína leiki. Þeir komum þó í hann krappann í lokaleiknum sem var við HSK. HSK vann fyrstu hrinuna  naumlega en UMSK náði með harðfylgi að snúa leiknum sér í hag og jafnaði leikinni 1 -1. Oddahrinan var svo eign UMSK. 

Kvennaliðið var einnig að uppistöðu frá HK en Stjarnan lagði einnig til leikmenn í liðið. Liðið vann alla leiki sína á mótinu og er vel að sigrinum komið. Úrslitaleikurinn var við lið heimamanna, ÍBA, sem kom á óvart með góðri frammistöðu.

Volleyball.is óskar liðum UMSK til hamingju með góðan árangur.


Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn