Uppbygging framundan - karlalið frá Fylki í efstu deild
fimmtudagur 10.júní 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 107 - Athugasemdir (1)
Blakdeild Fylkis auglýsir nú eftir þjálfurum eins og við greindum frá í gær.
Blakdeild Fylkis mun fá fleiri tíma til umráða næsta vetur og því er stefnan tekin á að stækka og efla deildina. Félagið
hyggst senda lið í efstu deild karla á nýjan leik eftir stutt hlé en áfram verður þó karlalið í 2. deild. Þetta er
verulega góðar fréttir fyrir blakíþróttina en BLÍ hefur lengi unnið að því að stækka 1. deild karla. Þá
verða Fylkisstúlkur áfram í efstu deild en auk þess er Fylkir með lið í 2. og 3. deild kvenna. Að sögn Ástríðar
Valbjörnsdóttur, stjórnarmanns í blakdeildinni, er nú verið að leita að þjálfurum fyrir marga flokka. Hún vill einnig benda á
að leikmenn sem hafa áhuga á að ganga til liðs við félagið eru velkomnir í hópinn. Með svo mikið framboð af liðum ættu
allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Megintíðindin eru kannski þau að setja á aukinn kraft í barna og unglingastarfið hjá félaginu. Ekki er vanþörf á
því að Reykjavíkurfélögin taki við sér þar og vonandi að fleiri félög líti nú til þess sem blakdeild Fylkis er
að gera.




