Verða KA menn deildarmeistarar í kvöld?
föstudagur 05.mars 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 138 - Athugasemdir (0)

Piotr Kempisty hefur verið öflugur hjá KA í vetur
Það er orðið langt um liðið síðan KA menn hafa unnið titil og þar á bæ eru menn orðnir óþreyjufullir. KA varð
síðast deildarmeistari 1994. Blakdeild KA hefur verið með stærstu deildum landsins um langa hríð og því verður þetta að teljast heldur
rýr uppskera. Bæði karla- og kvennalið KA eiga nú möguleika á því að landa titlum. Kannski er tíma KA manna kominn!




