Volleyball.is

Góður árangur íslensku stúlknanna í NEVZA mótinu í Færeyjum sl. helgi hefur vakið nokkra athygli. Stúlkurnar jöfnuðu besta árangur Íslands í NEVZA keppninni með því að ná í bronsið. 

Mikasa

Fréttir

Vöktu athygli

Góður árangur íslensku stúlknanna í NEVZA mótinu í Færeyjum sl. helgi hefur vakið nokkra athygli. Stúlkurnar jöfnuðu besta árangur Íslands í NEVZA keppninni með því að ná í bronsið. 

Liðið lagði Norðmenn í leik um 3. sætið með nokkuð öruggum 3 - 1 sigri. Norðmenn voru að vonum svekktir með úrslitin og nokkur umræða hefur átt sér stað í norsku blakhreyfingunni um frammistöðu norsku liðanna. Margir hafa stigið fram og gagnrýnt val og undirbúning liðanna. Ragnar Wislöff, þjálfari piltalandsliðsins og fyrrum þjálfari kvennaliðs Koll í Noregi hefur komið til varnar. Spurður um ástæðu þessarar niðurstöðu sagði Ragnar: "Í kvennakeppninni voru 4 nokkuð jöfn lið. Höfum í huga að Ísland og Færeyjar hafa leyfi til að nota leikmenn sem eru ári eldri. Þessi lið eru mun betri en maður gæti haldið. T.d. hafði íslenska liðið 3 leikmenn sem voru nálægt 190 cm á hæð, svo það vantar ekki efniviðinn. Norsk úrvalsdeildarlið ættu að líta til vesturs (Ísland/Færeyjar) ef þau eru að leita að hæfileikaríkum ungum leikmönnum utan Noregs."

Öll úrslit má finna á vefslóðinni hér að neðan.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn