Volleyball.is

Með boltann á lofti...

Mikasa

Nýjustu fréttir

Nýrrar nálgunar er þörf

Frá hæfileikabúðum BLÍ

Það er ljóst að eftirtekja íslensku unglingalandsliðanna er rýr eftir að núverandi Norður Evrópumóti unglingalandsliða pilta og stúlkna U-19 ára lauk um helgina. Stjórn Blaksamband Íslands verður að setjast yfir málin og skoða þau frá grunni og skoða hvað betur má fara, en þess ber að geta að U-19 liðin áttu ágæta spretti inn á milli en sveiflurnar voru greinilega of miklar til þess að árangur næðist.

Lesa meira

Ákvörðun RÚV vonbrigði


Ákvörðun RÚV um að sýna ekki beint frá bikarúrslitaleikjunum í blaki er köld vatnsgusa framan í blakhreyfinguna í landinu og íþróttastarfið í heild. Fyrir ári síðan handsalaði Blaksamband Íslands samning við RÚV um að sýnt yrði beint frá leikjunum a.m.k. næstu þrjú árin. Það heiðursmannasamkomulag hefur nú verið rofið.

Lesa meira

Krakkablak er grunnurinn


Grein Skúla Unnars Sveinssonar, blaðamanns á Morgunblaðinu, birt með góðfúslegu leyfi hans. Hún á fullt erindi við alla blakáhugamenn. Greinin birtist áður í Morgunblaðinu.

Lesa meira

Interview with power-player Masayuki Takahashi - Top scorer of Þróttur Reykjavík

Volleyball.is interviewed Masayuki Takahashi of Þróttur R this evening and asked him a couple of questions regarding last night's match and his stay in Iceland.

Masayuki scored a total of 28 points in only 3 sets. As far as Volleyball.is newswriter knows this is the best performance ever seen in Icelandic volleyball so far.

This is what Masayuki had to say


Lesa meira

Nýr á toppnum!

Piotr Kempisty - stigahæsti maður 1. deildar karla í dag
Eftir tvo sigra á Íslands- og bikarmeisturum Stjörnunnar, tóku Blakfréttir viðtal við burðarstólpa KA liðsins síðan í fyrra og í dag stigahæsta mann 1. Deildarinnar, fyrirliðann Piotr Kempisty.
Lesa meira

Leikmenn teknir tali á yngriflokkamóti BLÍ um helgina

Fréttaritari volleyball.is tók nokkra leikmenn tali á yngriflokkamóti BLÍ um helgina.

Geomar M. Orbon


Aldur: 15 ára
Lið: Stjarnan
Flokkur: 2. og 3. flokkur

Geomar er búinn að æfa með Stjörnunni í 2 ár. Hann byrjaði að æfa því að vinir hans voru að æfa svo hann ákvað að prófa. Hann hefur ekki getað hætt síðan enda segir hann að blak sé rosalega skemmtileg íþrótt. Helsta fyrirmynd Geomar er kúbverski leikmaðurinn Leonel Marshall. Hann er einna helst þekktur fyrir að vera með einn mesta stökkkraft sem þekkist í blaki í dag.



Geomar segist ætla að halda áfram að æfa því hann vill geta spilað með meistaraflokki þegar hann verður eldri!

Geomar segir að Kristófer liðsfélagi sinn sé með ljótustu tærnar í liðinu!

Kristófer Björn Ólafsson

Aldur: 15 ára
Lið: Stjarnan
Flokkur: 2. og 3. flokkur

Kristófer er búinn að æfa í 2 ár eins og Geomar. Hann byrjaði að æfa á svipaðan hátt og Geomar en Kristófer hafði verið að æfa aðrar íþróttir áður og ákvað að prófa eitthvað nýtt. Hann segist vera mjög ánægður með blakið og ætlar að halda áfram að æfa til að geta spilað með meistaraflokki.

Kristófer segir að Giba sé uppáhalds leikmaðurinn sinn, en hann hefur verið valinn besti leikmaður í heimi. Giba spilar í brasilíska landsliðinu sem lenti í 2. sæti á ÓL í ár.



Kristófer er ekki sammála Geomar um tærnar á sér. Kristófer segir að Geomar sé sjálfur með ljótustu tærnar í liðinu!

Baldvin, Gummi, Tómas og Finni


Aldur: 14 og 15 ára
Lið: UMFG Grundarfirði
Flokkur: 3. flokkur

Strákarnir voru mjög hressir þegar fréttaritari Volleyball.is tók þá tali. Baldvin og Gummi hafa einungis æft í 3 vikur en þeir segja að blakið sé gríðarlega skemmtilegt og þeir vilji halda áfram að æfa. Tómas og Finni eru búnir að æfa töluvert lengur, Tómas í 1 ár og Finni í 2.

Baldvin og Gummi voru þó kokhraustir og sögðust nú þegar vera orðnir miklu betri en liðsfélagar sínir. Tómas og Finni tóku þeirri yfirlýsingu með mikilli ró og hlógu léttilega. Þeir voru þó allir sammála um það að þeir ætluðu að halda áfram að æfa því það væri svo gaman.

Strákarnir sögðust vera mjög ánægðir með þjálfarann sinn og að það væri oftast gaman á æfingum. Þeir sögðu jafnframt að þjálfarinn þeirra væri fyrirmyndin þeirra í blakinu. Það er enginn annar en Guðmundur Haraldsson sem spilar fyrir Íslands hönd í unglingalandsliðunum!

Strákarnir stefna allir á það að spila með meistaraflokki þegar þeir eru búnir að æfa aðeins lengur.

Þegar þeir voru spurðir hver væri mesti kvennabósinn voru þeir sammála um að það væri Gummi og veltu þeir því fyrir sér hvort það tengdist því á einhvern hátt að hann væri loðnastur í liðinu. Þeir komust þó að þeirri niðurstöðu að það væri allavega ekki til að skemma fyrir!

Ljóst er að mikill efniviður er í leikmönnum yngriflokkanna hér á landi og verður spennandi að sjá meistaraflokkana á komandi árum.
Volleyball.is þakkar viðmælendum sínum á yngriflokkamóti BLÍ og óskar þeim öllum góðs gengis í blakinu á komandi tímum!

Leikmaðurinn - Berglind Gígja Jónsdóttir

Íslandsmót yngri flokka BLÍ var haldið í Ásgarði nú um helgina. Fréttaritari Volleyball.is var á staðnum og tók nokkra keppendur tali.

Einkennandi samstaða virtist vera meðal þeirra sem fréttaritari ræddi við um það hversu skemmtilegt er að æfa blak og keppendur skemmtu sér vel á mótinu!
Lesa meira

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn